Grjóthrunshætta vegna jarðskjálfta á Reykjanesi
Vegna jarðskjálftahrinu sem nú stendur yfir á Reykjanesi er aukin hætta á grjóthruni. Nú þegar hafa nokkrir skjálftar mælst yfir 3 stigum og í jarðskjálftum sem þessum getur grjóthrun orðið og jafnvel skriður eða snjóflóð fallið. Enn hafa ekki borist tilkynningar um nýlegt grjóthrun á svæðinu en jörð er frosin og snjóalög stöðug. Ef öflugri skjálftar verða aukast líkur á grjóthruni. Fólk er bent á að fara varlega í bröttum hlíðum og forðast svæði þar sem grjót getur hrunið, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.