Grindvískar unglingahljómsveitir fá æfingahúsnæði
Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt að nýta megi húsnæðið á gæsluvellinum við Hraunbraut sem æfingahúsnæði fyrir unglingahljómsveitir. Bæjarráð ítrekar að eftirlit verði haft með starfseminni og setur það skilyrði að æfingar fari ekki fram eftir kl. 10 á kvöldin.?Frístunda- og menningafulltrúa er falið að hafa yfirumsjón með því að farið sé að reglum og að umgengni sé til fyrirmyndar. Um sé að ræða tilraun til áramóta og þá verður málið endurskoðað.