Grindvíkingar vija slíta Reykjanesfólkvangi
Bæjarráð Grindavíkur telur að hagsmunum bæjarins sé betur borgið innan svokallaðs jarðvangs frekar en fólkvangs. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs Grindavíkur síðastliðinn þriðjudag. Þar segir í umsögn að tilgangur Reykjanesjarðvangs sé að vernda og nýta jarðminjar svæðisins í þágu sjálfbærrar þróunar og eflingu byggðarinnar. Þróuð verði jarðtengd ferðamennska á svæðinu (Geotourism) sem byggi á fræðslu um jarðminjar, samspil manns og náttúru, og útivist.
Með öflugu samstarfi atvinnulífs, sveitarfélaga, ríkisvalds og stoðkerfis skuli jarðvangurinn vinna að bættum búsetuskilyrðum og sköpun nýrra atvinnutækifæra. Bærinn vill að teknar verði viðræður við aðra aðila að fólkvangnum og umhverfisstofnun um möguleg slit á fólkvangnum.