HSS
HSS

Fréttir

Grindvíkingar velja fallegasta tréð
Föstudagur 5. júlí 2013 kl. 19:30

Grindvíkingar velja fallegasta tréð

Umhverfisviðurkenningar í Grindavík verða veittar að vanda í ágúst en umhverfisnefnd leitar eftir ábendingum frá íbúum bæjarins um fallega garða, fallega endurbyggingu á gömlum húsum og lóðum bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Sú nýjung verður í ár að veitt verða verðlaun fyrir fallegasta tréð í samvinnu við Skókræktarfélag Grindavíkur og er einnig óskað eftir tilnefningum í þeim flokki.

Hægt er að koma ábendingum með því að senda upplýsingar á [email protected] eða með því að hringja í síma 420 1100 - einnig með því að setja inn tilnefningar á fésbókarsíðu bæjarins.

grindavik.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn