Grindvíkingar þurfa líka að skipta um gervigras
Á morgun miðvikudag verður fjölnota íþróttahúsinu í Grindavík, Hópinu, lokað þar sem byrjað verður að skipta um gervigras í húsinu vegna galla. Á meðan verða æfingar yngri flokkanna á sparkvöllum við báða grunnskólana. Hafa æfingarnar forgang á sparkvellina þangað til Hópið opnar að nýju um miðjan október.
Þjálfarar einstakra flokka gefa upplýsingar um hvar æfingarnar verða hverju sinni.