Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Grindvíkingar orðnir 3118
Miðvikudagur 16. desember 2015 kl. 09:21

Grindvíkingar orðnir 3118

Grindvíkingum fjölgar enn. Alls hefur fjölgað um 230 íbúa síðan í janúar 2014, eða um 7%. Það sem af er þessu ári, í lok nóvember, er fjölgunin 4%. Grindvíkingar með erlent ríkisfang eru 351, þar af eru pólskir Grindvíkingar 228. Íbúafjöldinn í Grindavík þann 1. desember sl. var 3118.

þann Þann 8. janúar sl. kom þjúþúsundasti Grindvíkingurinn í heiminn. Þeir urðu reyndar tveir en þessa nótt komu tvíburar í heiminn sem deila því titlinum 3.000. Grindvíkingurinn. Foreldrar tvíburanna eru þau Sigrún Ísdal Guðmundsdóttir og Steinar Nói Kjartansson. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Kristín María Birgisdóttir forseti bæjarstjórnar, afhentu gjafir og viðurkenningu til fjölskyldunnar á fundi bæjarstjórnar í janúar sl.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024