Bygg
Bygg

Fréttir

Grindvíkingar mótmæla niðurskurði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Föstudagur 8. október 2010 kl. 09:37

Grindvíkingar mótmæla niðurskurði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja


Bæjarráð Grindavíkurbæjar mótmælir harðlega fyrirhuguðum tillögum um niðurskurð á grunnþjónustu í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
„Undanfarin ár hefur verið dregið stórkostlega úr framlögum til heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum, en þau voru fyrir lægri en í sambærilegum heilbrigðisumdæmum. Nú þegar hefur heilsugæslum í Sandgerði, Garði og Vogum verið lokað og ýmis grunnþjónusta verið skert á svæðinu í heild sinni.
Bæjarráð Grindavíkur kallar eftir stefnu ríkisins í heilbrigðisþjónustu.
Bæjarráð skorar á þingmenn og Ríkisstjórn Íslands að gæta jafnræðis og sanngirni í framlögum á fjárlögum. Ljóst er að framlög á íbúa til heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum eru með því lægsta sem gerist á landinu,“ segir í bókun bæjarráðs frá fundi þess í gær.

Bílakjarninn
Bílakjarninn