Fréttir

  • Grindvíkingar í blússandi 4G sambandi
  • Grindvíkingar í blússandi 4G sambandi
Miðvikudagur 26. nóvember 2014 kl. 11:31

Grindvíkingar í blússandi 4G sambandi

Grindvíkingar eru komnir í blússandi 4G samband. Þessi fjórða kynslóð farsímasenda eflir sambandið til muna, þar sem hraðinn um netið eykst. Auk þess leyfir tæknin áhorf í háskerpu og niðurhal kvikmynda á mettíma.

Ljóst er að sífellt fleiri landsmenn eru tilbúnir fyrir 4G tæknina. „Við sjáum að 4G snjalltækjum hefur fjölgað hratt og vel í höndum landsmanna. Í ársbyrjun 2013 voru aðeins 2% viðskiptavina með slík en eru nú ríflega fjórðungur. Þá styðja 85 af hverjum 100 seldum símtækjum í verslunum 4G tæknina þessa stundina. Síminn hefur byggt upp í takti við þessa þróun og er kominn með þessa fjórðu kynslóð farsímasenda í alla landshluta,“ segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, í tilkynningu til Víkurfrétta.

Frá því í vor hafa 4G sendar verið settir upp víða um land. Á Akureyri, Egilsstöðum, Akranesi, Ísafirði og Selfossi. Einnig í Keflavík, Sauðárkróki, Stykkishólmi, Borgarnesi og Vestmannaeyjum. Þá hefur netið verið þétt á höfuðborgarsvæðinu. Nú í síðustu viku til að mynda í Smáralind og Sólvangi í Hafnarfirði. 4G samband er nú einnig komið upp í helstu sumarbústaðarlöndum landsmanna og þar sem ferðamenn halda sig helst; eins og við Geysi.

„Við hjá Símanum erum hvergi hætt og munum enn bæta 4G sambandið á árinu. 4G kerfi Símans vex með hverjum deginum sem líður og við erum afar ánægð með að geta nú boðið þjónustuna í Grindavík.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024