Grindvíkingar hafna 62 metra hárri vindmyllu
– telur mannvirkið ekki falla vel að þeirri náttúru sem er í nágrenni Grindavíkur
Skipulags- og umhverfisnefnd Grindavíkur hefur hafnað erindi um uppbyggingu vindmyllu á Stað við Grindavík.
Í erindi frá Biokraft er lýst áætlunum um uppbyggingu vindmyllu á Stað. Mastur vindmyllunnar er 40 m, þvermál blaðahrings er 44 m og mun mannvirkið því ná 62 m hæð.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur mannvirkið ekki falla vel að þeirri náttúru sem er í nágrenni Grindavíkur og hafnar erindinu.