Bygg
Bygg

Fréttir

Grindvíkingar fá að kíkja heim
Sunnudagur 12. nóvember 2023 kl. 11:59

Grindvíkingar fá að kíkja heim

Grindvíkingar mega sækja nauðsynjar  og sinna brýnum erindum í Grindavík. Það er niðurstaða frá stöðufundi Veðurstofunnar, Almannavarna og sérfræringa Háskóla Íslands sem lauk kl. 11 í morgun, sunnudag. Víðir Reynisson frá Almannavörnum segir að skoða þurfi hvernig hægt sé að framkvæma þetta með öryggi í huga.

Víðir segir að þetta sé vandasamt því kvika geti komist upp á yfirborðið á 30 mínútum. Lögreglan á Suðurnesjum komi að þessari aðgerð.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að frá morgni 11. nóvember hefur skjálftavirknin við kvikuganginn haldist nokkuð stöðug. Frá miðnætti 12. nóvember hafa um 1000 skjálftar mælst og hafa þeir allir verið undir 3,0 að stærð. Mesta skjálftavirknin hefur verið frá miðju gangsins norðan við og suður undir Grindavík. Flestir skjálftanna eru á 3-5 km dýpi við neðri hluta kvikugangsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

GPS mælingar sem ná yfir síðasta sólarhring sýna að hægt hefur á aflögun tengt kvikuganginum sem myndaðist á föstudag, 10. nóvember. Það bendir til þess að kvika sé að færa sig nær yfirborði, engin líkön hafa verið keyrð til að ákvarða dýpi hennar að svo stöddu.

Það var sameiginlegt mat fundarins út frá nýjustu gögnum að svigrúm sé til tímabundinna aðgerða á vegum almannavarna til að sækja nauðsynjar fyrir íbúa og sinna brýnum erindum í Grindavík og nágrenni. Á meðan að á slíkum aðgerðum stæði yrði vakt svæðisins aukin og fylgst náið með merkjum um hvort að kvika komi upp. Það var mat vísindamanna að ráðlegt væri að hefja þessar aðgerðir strax þar sem óvissa um framvindu atburðarins vex eftir því sem líður á daginn.