Grindavíkurmærin Ólöf Rún í hlutverki skæravarðar
Samkvæmt venju þegar nýr vegur er opnaður hjá Vegagerðinni fer fram borðaklipping. Til þess eru notuð sérstök skæri sérmerkt hverri athöfn. Við þessa athöfn er sérstakur skæravörður sem heldur á bláum púða með skærum á og afhendir síðan ráðherra þegar kemur að þvi að klippa á borðann. Skæravörður í gær þegar Suðurstrandavegur var opnaður var ung Grindavíkurmær Ólöf Rún Óladóttir, 10 ára. Leysti hún hlutverk skæravarðar með stakri prýðri og stóð sig vel. Á myndinni er Ólöf Rún með þeim Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra og Hreini Haraldssyni vegamálastjóra.
grindavik.is