HSS
HSS

Fréttir

Grindavíkurfeðgar og Grindavíkurdætur í Víkurfréttum vikunnar
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
þriðjudaginn 29. mars 2022 kl. 19:33

Grindavíkurfeðgar og Grindavíkurdætur í Víkurfréttum vikunnar

Það er grindvísk slagsíða á Víkurfréttum í þessari viku. Fyrirtækið Jón og Margeir ehf. í Grindavík er 30 ára um þessar mundir. Það eru grindvískir feðgar sem reka þetta myndarlega fyrirtæki sem er með alvöru trukka og stórvirkar vinnuvélar í sinni þjónustu. Útsendarar Víkurfrétta tóku hús á feðgunum Jóni og Margeiri. Viðtal við þá er í blaði vikunnar en þeir eru einnig viðfangsefni okkar í Suðurnesjamagasíni á fimmtudagskvöld kl. 19:30 á Hringbraut og vf.is.

Nýr liðsmaður okkar í Grindavík, Sigurbjörn Daði, kíkti á syngjandi Grindavíkurdætur og gerir þeim skil í Víkurfréttum og Suðurnesjamagasíni. Við förum einnig á æfingu á Sálumessu Mozarts og ræðum við Jóhann Smára Sævarsson um verkefnið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Unga fólkið fær sitt pláss í blaðinu. Þar má finna FS-ing vikunnar og UNG(menni) vikunnar. Í blaðinu eru einnig Lokaorð sem Margeir Vilhjálmsson skrifar og aflafréttir eru á sínum stað sem og teikning vikunnar frá Díserlu. Hún klikkar ekki.

Vegleg íþróttaumfjöllun er í blaðinu og nýjustu tíðindi úr öllum sveitarfélögum Suðurnesja er að finna í Víkurfréttum vikunnar sem sjá má á rafrænu formi hér að neðan. Prentaðri útgáfu verður dreift á alla okkar dreifingarstaði á Suðurnesjum fyrir hádegi á miðvikudag.