Grindavíkurbær undirbýr umsókn og innleiðingu Heilsueflandi samfélags
Grindavík undirbýr umsókn og innleiðingu „Heilsueflandi samfélags“ og fetar þar með í fótspor Reykjanesbæjar, sem varð heilsueflandi samfélag nú fyrr á árinu. Þetta kemur fram í Járngerði, blaði sem skrifar um bæjarmál Grindvíkinga.
Heilsueflandi samfélag snýst um það að íbúar hafi val og að skapa aðstæður til þess að þroskast í leik og starfi. Grindavíkurbær hefur ráðið starfsmann í tímabundið starf til þess að gera fjárhags- og verkefnaáætlun fyrir umsókn og innleiðingu.
Embætti Landlæknis ber ábyrgð á verkefninu „Heilsueflandi samfélag“ og aðstoðar sveitarfélög við innleiðingu þess.