Grindavíkurbær leitar að einbýlishúsi fyrir bæjarstjóra
Bæjarráð Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að fjárfesta í einbýlishúsi sem þjóna muni sem bæjarstjórabústaður í framtíðinni. Húsið kemur í stað húss sem bærinn hefur nýverið selt. Leitað er að tiltölulega nýlegu fullbúnu húsi með a.m.k. 4 svefnherbergjum.
Hægt er að senda upplýsingar um slíkar eignir á Jón Þórisson fjármálastjóra ([email protected]) til 26. ágúst næstkomandi.
Myndin: Grindavíkurbær átti þetta hús um tíma en það var m.a. bæjarstjórabústaður í Grindavík.