Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Grindavíkurbær fagnar 40 ára afmæli 2014
Fimmtudagur 24. október 2013 kl. 12:24

Grindavíkurbær fagnar 40 ára afmæli 2014

Grindavíkurbær fagnar 40 ára kaupstaðarafmæli á næsta ári og verður tímamótanna minnst. Afmælisnefnd bæjarins hefur verið skipuð en í henni sitja fimm fulltrúar úr bæjarfélaginu.

Jóna Rut Jónsdóttir er fulltrúi frístunda- og menningarnefndar. Birna Bjarnadóttir er fulltrúi eldri borgara og Margrét Rut Reynisdóttir fulltrúi ungmennaráðs. Frá atvinnulífinu í Grindavík kemur Erla Ósk Wissler Pétursdóttir og fulltrúi bæjarstjórnar er Kristín María Birgisdóttir.

Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs er starfsmaður nefndarinnar en þessi nefndarskipun hefur verið staðfest í bæjarráði Grindavíkur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024