Grindavík vill peningana út úr SpKef
Grindavíkurbær vill taka út þær innstæður sem hann á í Spkef en þær nema rúmum þremur milljörðum króna, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins sem greinir frá þessu í morgun.
Síðasliðið haust lagði Grindavíkurbær inn söluvirði þess hlutar sem bærinn seldi í Hitaveitu Suðurnesja. Spkef stóð þá höllum fæti eftir bankahrunið. Nú vilja Grindvíkingar færa féð, samkvæmt frétt MBL.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri Grindavíkur, vill ekki tjá sig efnislega um málið í samtali við blaðið.