HSS
HSS

Fréttir

Grindavík: Tekist á um hlaupabraut
Fimmtudagur 17. apríl 2008 kl. 14:50

Grindavík: Tekist á um hlaupabraut

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Nokkur styr hefur staðið um nýja fjölnota íþróttahúsið í Grindavík að undanförnu, nánar tiltekið um hlaupa- eða göngubraut inni í húsinu. Skiptar skoðanir voru á málinu á milli aðalstjórnar UMFG og knattspyrnudeildar félagsins og kom það berlega í ljós á síðasta bæjarráðsfundi þar sem báðir aðilar lögðu fram bréf til ráðsins þar sem afstaða þeirra var reifuð.

Bitbeinið er hvort leggja eigi braut úr tartan, sem er hefðbundið undirlag á hlaupabrautum, í kringum gervigrasvöllinn. Samkvæmt áætlunum er einungis braut öðru megin við völlinn. Í bréfi aðalstjórnarinnar kom fram sú ósk að bæjaryfirvöld sjái til þess „að húsið komi til með að þjóna öllum bæjarbúum á sem fjölbreyttastan hátt“.


Gunnlaugur Hreinsson, formaður aðalstjórnar, sagði í samtali við Víkurfréttir að í bréfinu hafði þau viljað benda bænum góðfúslega á það að með þessu yrði e.t.v. illlmögulegt að ganga hringinn á meðan knattspynuæfingar stæðu yfir. „Það myndi takmarka notagildi hússins ef ekki væri hægt að ganga þar frá kl. 3 á daginn til kl. 11 á kvöldin allan veturinn. Við erum að vona að bæjaryfirvöld muni sjá til þess að það verði pláss fyrir fólk að ganga hringinn.“


Gunnlaugur bætir því við að eðlilega hafi knattspyrnudeildin hugsað um sinn hag í málinu, en aðalstjórnin þurfi að hugsa um hag allra. Hann taldi að ekki þyrfti meira en 250 til 280 cm braut til að umferð gangandi gæti gengið snurðulaust fyrir sig.


„Við erum að vonast til þess að auka hreyfingu almennings á næstu árum og þá er þetta eini staðurinn í Grindavík þar sem hægt er að ganga eða skokka innandyra. Við erum vongóðir um að okkur hafi tekist að koma þessari skoðun okkar áleiðis. Ég held alla vegana að fólk muni aldrei sætta sig við að þurfa að labba fram og til baka.“


Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri Grindavíkur, sagði í samtali við Víkurfréttir að ósk aðalstjórnar um tartan-braut allan hringinn hafi í raun verið hafnað. „Það var ákveðið að halda sig við upphaflegt plan sem gerði ráð fyrir hlaupabraut öðru megin í húsinu. Hins vegar höfum við alltaf lagt áherslu á að hægt væri að labba hringinn þó það sé á gervigrasi hluta leiðarinnar. Nú er verið að merkja völlinn og samkvæmt öryggisreglum KSÍ er skylt að hafa a.m.k. þrjá metra frá vellinum út í vegg, sem hefur í för með sér að hægt er að labba hringinn.“


Húsið verður mikil bylting fyrir hið öfluga íþróttalíf í bænum þar sem grunnhugmyndin með húsinu var að færa alla starfsemi knattspyrnunnar þangað og losa með því um tíma í sal íþróttahússins. Það gæfi öðrum deildum UMFG frekara svigrúm og bætta aðstöðu til æfinga. Annar þáttur í því var vissulega líka að skapa betri aðstöðu fyrir almenning til að hreyfa sig og kemur bráðlega í ljós hvernig til tekst.