Bygg
Bygg

Fréttir

Grindavík selur hlut sinn í Bláa lóninu
Föstudagur 13. apríl 2007 kl. 17:32

Grindavík selur hlut sinn í Bláa lóninu

Grindavíkurbær gekk frá sölu á öllum hlutum sínum í Bláa Lóninu hf. til Sparisjóðsins í Keflavík á miðvikudag. Hluturinn nam 2.19% af 600 milljóna heildarhlutafé, alls 14 milljónir að nafnvirði, en kaupverðið er rúmar 82 milljónir. SpKef átti áður tæp 5% í Bláa lóninu hf. Þess má geta að nýlega lauk fyrirtækið hlutafjáraukningu um 100 milljónir að nafnvirði, en hún var ekki komin inn í áðurnefndar tölur.

Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Grindavík, sagði í samtali við Víkurfréttir að kaupin hafi ekki átt sér langan aðdraganda, en meirihlutanum hafi fundist réttur tími til að selja.
„Við fengum tilboð í bréfin gerðum þeim gagntilboð upp á gengið 5,8 sem þeir tóku. Með þessu erum við að losa fé til að nýta til uppbyggingar í sveitarfélaginu, en einnig teljum við það ekki vera hlutverk sveitarfélagins að vera langtímafjárfestir. Við erum tilbúnir til að taka áhættu og styðja við nýsköpun og sprotafyrirtæki í bænum og höfum gert það, en við teljum okkur ekki þurfa þess þegar fyrirtækið er komið á legg eins og Bláa lónið er, gott og vel rekið fyrirtæki.“

Ólafur er ansi sáttur við kaupverðið, en til samanburðar má geta þess að í nýafstaðinni hlutafjáraukningu var hluturinn seldur á genginu 5. Fulltrúar minnihluta í bæjarráði Grindavíkurbæjar settu sig upp á móti sölunni. Þeir töldu þetta ekki réttan tímapunkt og vildu þvert á móti auka við hlutafé.

Fjölmörg verkefni liggja fyrir bæjaryfirvöldum í Grindavík en þar ber hæst fyrirhugaða byggingu fjölnota íþróttahúss sem mun kosta um 200 milljónir. Bærinn stendur nú í samningaviðræðum við verktakafyrirtækið Grindina um smíði hússins og er líklegt að gengið verði frá samningum á næsta bæjarstjórnarfundi, síðar í mánuðinum.

Mýmörg fleiri verkefni eru framundan eins og smíði nýs grunnskóla í Hópshverfi, endurbætur á Festi þar sem er gert ráð fyrir tónlistarskóla, auk gríðarlegra framkvæmda í gatnagerð og vatnsveitulagningu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn