Grindavík: Meirihlutinn brothættur
Meirihlutasamstarfið í Grindavík er brothætt. Petrína Baldursdóttir, oddviti Framsóknarmanna í bæjarstjórninni á þó ekki von á því að bæjarstjórnarmeirihlutinn sé sprunginn. Í samtali við Víkurfréttir segir hún að Framsóknarmenn séu að skoða stöðuna en fundað verður aftur á mánudaginn.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir óskaði í gær eftir því að vera veitt tímabundið leyfi frá störfum bæjarfulltrúa. Hún mun þó sitja áfram sem bæjarstjóri. Þetta var samþykkt með fimm atkvæðum en fulltrúar Sjálfstæðismanna greiddu atkvæði á móti. Þeir lögðu jafnframt fram bókun:
„Fulltrúar D lista telja að þar sem bæjarfulltrúinn Jóna Kristín Þorvaldsdóttir er viðstödd fundinn megi varamaður ekki sitja fund sem varafulltrúi. Fulltrúar D lista áskilja sér þann rétt að kæra þetta stjórnsýslubrot til Samgönguráðuneytis“.
Garðar Páll Vignisson, forseti bæjarstjórnar, sem nú situr í bæjarstjórninni fyrir Vinstri Græna en skipaði áður sæti Samfylkingar svaraði með annarri bókun: Bókun:
„Það er mat mitt sem forseta að það sé fullkomlega eðlilegt að bæjarstjóri sitji bæjarstjórnarfund sem ritari fundar enda hafi hún hér með sagt af sér störfum sem bæjarfulltrúi“.
Að lokum var fyrsti liður á dagskrá bæjarstjórnar samþykktur samhljóða en næstu 13 liðum á dagskrá var frestað eftir að Petrína Baldursdóttir hafði tekið til máls.
Bæjarstjórn Grindavíkur riðaði til falls fyrir fáeinum vikum í tengslum við ráðningu á nýjum skólastjóra. Þá vildi Samfylkingin ráða Garðar Pál Vignisson, forseta bæjarstjórnar, í stöðuna. Garðar var þá einnig í Samfylkingunni. Fallið var frá því að ráða Garðar og bæjarstjórnarsamstarfinu var bjargað.
Þá sprakk meirihlutinn í Grindavík fyrir um ellefu mánuðum síðan en sá meirihluti var skipaður fulltrúum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins.
Pólitískt mynstur hefur einnig breyst á síðustu dögum í Grindavík. Skyndilega eru tveir bæjarfulltrúar orðnir Vinstri Grænir. Það eru þeir Garðar Páll Vignisson sem áður var Samfylknigarmaður og Björn Haraldsson sem áður var í Frjálslynda flokknum.
Bæjarstjórnin í Grindavík er því svona:
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir (S)
Garðar Páll Vignisson, forseti bæjarstjórnar (V)
Petrína Baldursdóttir, formaður bæjarráðs (B)
Gunnar Már Gunnarsson (B)
Sigmar Eðvarðsson (D)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Björn Haraldsson (V)
Meirihlutasamstarfið er í dag með Samfylkingu og Framsóknarflokki. Þessir flokkar hafa í dag þrjú sæti af sjö í bæjarstjórn en njóta stuðnings Vinstri Grænna, sem vilja Jónu Kristínu áfram í sæti bæjarstjóra.