Grindavík hvetur sjávarútvegsráðherra að banna ekki fjölfosfat
Bæjarstjórnar Grindavíkur ályktaði um notkun fjölfosfata í saltfiskframleiðslu en þar hvetur hún sjávarútvegsráðherra til að draga til baka ákvörðun um að banna blöndun fjölfosfata í saltfisk og léttsaltaðan fisk.
Ályktunin hljóðar svo:
Bæjarstjórn Grindavíkur hvetur sjávarútvegsráðherra til að draga til baka ákvörðun um að banna blöndun fjölfosfata í saltfisk og léttsaltaðan fisk. Samkvæmt núgildandi reglum er ekki búið að taka fyrir notkun á fjölfosfötum í saltfiskframleiðslu. Bæjarstjórn telur því eðlilegra að ráðherra fylgi m.a. fordæmi Dana og Færeyinga og bíði niðurstöðu Evrópusambandsins, sem skoðar nú að heimila notkun á fjölfosfötum í saltfiskframleiðslu. Ljóst er að um verulega hagsmuni er að ræða fyrir íslenska saltfiskframleiðendur og nauðsynlegt að þeir sitji við sama borð og framleiðendur í öðrum löndum. Áætlað er að framleiðsla á saltfiski skapi um 30 milljarða útflutningstekna á Íslandi, en þar af komi að minnsta kosti 20% frá Grindavík.
Bæjarstjórn Grindavíkur býður sjávarútvegsráðherra í heimsókn til Grindavíkur til að kynna sér málið með bæjaryfirvöldum og saltfiskframleiðendum.