Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Grindavík heimahöfn næst flestra fiskiskipa á landinu
Þriðjudagur 3. mars 2009 kl. 08:42

Grindavík heimahöfn næst flestra fiskiskipa á landinu


Reykjavík er heimahöfn flestra fiskiskipa eða alls 88 í lok síðasta árs samkvæmt samantekt Hagtíðinda sem byggja á skrá Siglingamálastofnunar. Þar á eftir kemur Grindavík með 81 skip skráð. Í Reykjavík voru einnig flestir opnir fiskibátar með heimahöfn, alls 35, en 30 bátar áttu heimahöfn í Hafnarfirði. Flest vélskip áttu heimahöfn í Grindavík eða 66 skip, 43 voru skráð með heimahöfn í Reykjavík og 42 í Vestmannaeyjum. Í Reykjavík voru 10 togarar skráðir með heimahöfn og 7 í Vestmannaeyjum og á Akureyri.

Fiskiskipastóll Íslendinga við árslok 2008 var alls 1.529 skip. Þar af voru þilfarsskip, þ.e.a.s. vélskip og togarar, 829 talsins, vélskip 769 og togarar 60. Á heildina litið fækkaði fiskiskipum um 113 frá árinu 2007 og eru flest þeirra vélskip. Í árslok 2008 voru vélskip alls 769 og hafði fækkað um 65 frá fyrra ári. Opnum fiskibátum fækkaði um 44 og togurum um 4.

www.grindavik.is greinir frá.

---

VFmynd/elg - Frá löndun í Grindavíkurhöfn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024