Grindavík: fjórðungur sextán ára unglinga reykja
Þegar könnun varðandi reykingar ungmenna er nánar skoðuð kemur í ljós að 6,7% ungmenna í Grindavík á aldrinum 12-16 ára reykja og í Reykjanesbæ reykja 7,3% ungmenna á sama aldri. Í Sandgerði reykja hinsvegar 3,9% ungmenna á aldrinum 12-16 ára. Ef tölur af öllu Reykjanesi eru skoðaðar kemur í ljós að 7,3% unglinga á aldrinum 12-16 ára reykja.
Langflestir unglingar á 16 ára aldri reykja samkvæmt könnuninni, en 25% af 16 ára unglingum í Grindavík reykja. Í Reykjanesbæ fer hlutfallið í 19,4% og í Sandgerði er hlutfallið 19,1%.
Langflestir unglingar á 16 ára aldri reykja samkvæmt könnuninni, en 25% af 16 ára unglingum í Grindavík reykja. Í Reykjanesbæ fer hlutfallið í 19,4% og í Sandgerði er hlutfallið 19,1%.