Fréttir

Grindavík áfram opin með sama hætti
Viðbörunarflautur fyrir Grindavík eru á þaki íþótttahússins. VF/Hilmar Bragi
Föstudagur 1. mars 2024 kl. 15:27

Grindavík áfram opin með sama hætti

Fyrirkomulag á aðgengi að Grindavík hefur verið framlengt og verður tekið til endurskoðunar föstudaginn 8. mars 2024 eða fyrr eftir atvikum. Það verður áfram með sama hætti og verið hefur síðustu sólarhringa. Í fyrri útgáfu af fréttinni sagði að viðvörunarflautur yrðu prófaðar í kvöld. Það er rangt, segir í leiðréttri tilkynningu frá lögreglustjóranum.

Í tilkynningu til fjölmiðla fyrr í dag segir að lögreglustjóranum á Suðurnesjum þyki rétt að árétta neðangreint.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ríkislögreglustjóri féll frá fyrirmælum um brottflutning úr Grindavík frá og með 19. febrúar 2024. Ákvörðun ríkislögreglustjóra um brottvísun, með heimild í 24. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008, tók gildi 15. janúar sl. og var síðan framlengd einu sinni eða þann 4. febrúar sl.

Með hliðsjón af framansögðu ákvað lögreglustjórinn á Suðurnesjum að heimila Grindvíkingum og þeim sem starfa Í Grindavík að dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. Mikilvægt er að hafa neðangreint í huga.

Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri. Lögreglustjóri mælir ekki með því að fólk dvelji í bænum.

Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara. Hætta er metin töluverð á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.

Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.

Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja bæjarins og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.

Á starfssvæði Bláa Lónsins og HS orku er talin töluverð hætta á hraunflæði. Um tíma þrengdi að aðkomuleiðum þegar hraun rann yfir Grindavíkurveg og lokaði leiðinni inn að Bláa Lóninu, Northern Light Inn og HS orku. Lagður var vegur yfir ný runnið hraunið og aðkoma um Grindavíkurveg opnuð að nýju.

Enn eru hættur á svæðinu í kjölfar eldgoss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. Land rís í Svartsengi og merki eru um að það styttist í næsta gos vegna þeirrar kviku sem safnast nú saman undir Svartsengi.

Lokunarpóstar eru við Bláalónsveg, Nesveg og Suðurstrandarveg. Þá er ekki hægt að aka Grindavíkurveg inn til Grindavíkur þar sem hraun rann yfir þjóðveginn í eldgosinu 14. janúar sl.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settir upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt. Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir ekki með því. Lögreglustjóri bendir á að líklegt er að það styttist í næsta gos og biður fólk um að taka tillit til þess. Fyrirvari vegna næsta eldgoss gæti orðið mjög stuttur.

Það er mat vísindamanna að ef til eldgoss kemur, er líklegast að kvikan leiti frá Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina og að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið kæmu fram í skyndilegri, staðbundinni og ákafri smáskjálftavirkni. Ef horft er til fyrri eldgosa á svæðinu gæti nýtt eldgos hafist með skömmum fyrirvara, innan við 30 mínútur, allt eftir því hvar á Sundhnúksgígaröðinni kvika kemur upp. Ekki er hægt að útiloka að gos komi upp inn í Grindavík þótt það teljist ólíklegt.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla sinnir lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/ þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.