Bygg
Bygg

Fréttir

Grindavík: 3 milljarðar í hagnað
Föstudagur 16. maí 2008 kl. 16:01

Grindavík: 3 milljarðar í hagnað

 
3.188 milljóna króna hagnaður varð á rekstri Grindavíkurbæjar á síðasta ári, en ársreikningur sveitarfélagsins var samþykktur í bæjarstjórn á miðvikudag. Í bókun meirihluta D- og S-lista segir:
 
Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs, þ.e. A-hluta stofnana er 3.188,8 milljónir kr. í hagnað. Áætlun gerði ráð fyrir 3.055,3 milljónum kr. í hagnað. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 3.184,8 milljónir kr. í samanburði við áætlun um jákvæða niðurstöðu að fjárhæð 3.027,7 milljónir króna.
 
Niðurstöður málaflokka eru að mestu í samræmi við fjárhagsáætlun. Helstu frávik í rekstri eru þau að:
- Söluhagnaður hlutabréfa var 58,9 millj. kr. umfram áætlun.
- Fjármunatekjur umfram áætlun námu 26,2 millj. kr.
- Fjármagnsgjöld umfram áætlun námu 10,6 millj. kr.
- Rekstrartekjur umfram áætlun nema 40 millj. kr. sem skýrist að mestu af hærra framlagi frá Jöfnunarsjóði en áætlun gerði ráð fyrir.
- Rekstrargjöld urðu 33 milljónum kr. undir áætlun.
- Afskriftir  voru 14 millj. kr. hærri en áætlun.
 
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum eru 7.799,3 milljónir kr. Heildarskuldir og skuldbindingar eru 2.644,0 milljónir kr. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 347 milljónir kr. og reiknuð skuld að fjárhæð 241,6 millj. kr. sem er vegna leigusamnings við Nýsi vegna leikskólans við Stamphólsveg. Langtímaskuldir, að meðtalinni skuld vegna leikskólans við Stamphólsveg eru 1.616,6 milljónir kr., þar af greiðast 169,8 milljónir kr. á árinu 2008.
 
Rekstur A og B hluta skilaði 152,4 millj. kr. í veltufé frá rekstri sem er 10,8% af heildartekjum til samanburðar við 35,2 millj. kr., eða 2,6% af heildartekjum samkvæmt áætlun.
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum voru á árinu 2007 692,8 milljónir kr. Á árinu voru tekin ný lán að fjárhæð 96,5 milljónir kr. og afborganir lána og leiguskuldbindingar voru 203,8 milljónir kr. Handbært fé hækkaði um 4.081,6 millj. kr. í samanburði við áætlun 4.050,6 milljónir kr. Handbært fé í árslok var 4.449,9 milljónir kr.
 
Reikningurinn var samþykktur með fjórum atkvæðum meirihluta. Minnihluti sat hjá.


Loftmynd/Oddgeir Karlsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn