HSS
HSS

Fréttir

Grímuskylda fyrir alla 10 ára og eldri í strætó
Mánudagur 2. nóvember 2020 kl. 10:16

Grímuskylda fyrir alla 10 ára og eldri í strætó

Grímuskylda er komin á í strætó í Reykjanesbæ fyrir alla 10 ára og eldri. Þetta kom fram á fjarfundi neyðarstjórnar Reykjanesbæjar sem fram fór á laugardaginn. Breyting á reglugerð var gerð í dag, mánudaginn 2. nóvember og felur í sér tilmæli um að börn fædd 2011 eða síðar þurfa ekki að bera andlitsgrímu. Þann 31. október gilti þetta um börn fædd 2015 og síðar.

Breytt reglugerð nær hún til allra almenningsvagna á Reykjanesi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hertar sóttvarnaraðgerðir eru nú í gildi. Að hámarki mega 10 manns koma saman og aukin áhersla er á grímunotkun. Þá fellur allt íþróttastarf niður og takmarkanir eru á skólastarfi. Íþróttahús og sundlaugar eru lokaðar fyrir almenning.