Grímur Karlsson sæmdur riddarakrossi
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi ellefu Íslendinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Þar á meðal var Grímur Karlsson fyrrverandi skipstjóri, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir smíði báta- og skipalíkana.
Aðrir sem voru heiðraðir í dag voru:
Ástbjörg Stefanía Gunnarsdóttir íþróttakennari, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði í almenningsíþróttum og lýðheilsu.
Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona, Hafnarfirði, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og menningarlífs.
Grétar Þorsteinsson fyrrverandi forseti ASÍ, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks verkafólks.
Hildur Sæmundsdóttir ljósmóðir, Grundarfirði, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðismála og forvarna.
Jón Arnþórsson forstöðumaður Iðnaðarsafnsins, Akureyri, riddarakross fyrir framlag til varðveislu íslenskrar verkkunnáttu og safnamenningar.
Jón Eiríksson fræðimaður og fyrrverandi oddviti, Vorsabæ á Skeiðum, riddarakross fyrir félagsstörf og framlag til menningarsögu.
Kjartan Ragnarsson forstöðumaður Landnámsseturs Íslands, Borgarnesi, riddarakross fyrir störf í þágu leiklistar og nýsköpun í miðlun menningararfs.
María Jónsdóttir kvæðakona og fyrrverandi bóndi, Hvolsvelli, riddarakross fyrir framlag til varðveislu þjóðlegrar kvæðamenningar.
Sigurður Guðmundsson forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðismála.
Steinunn Þórarinsdóttir myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar myndlistar.
Samsett mynd: Grímur með menningarverðlaunin Súluna. Í dag fékk hann riddarakross að Bessastöðum.
Samsett mynd: Grímur með menningarverðlaunin Súluna. Í dag fékk hann riddarakross að Bessastöðum.