Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gríðarlegar annir á Keflavíkurflugvelli
Þriðjudagur 29. mars 2005 kl. 21:54

Gríðarlegar annir á Keflavíkurflugvelli

Gríðarlegar annir hafa verið á Keflavíkurflugvelli í dag þegar Íslendingar hafa þúsundum saman streymt heim úr páskafríi. Frá Kanaríeyjum einum komu fjórar þéttsetnar þotur með skömmu millibili í dag og aðrar þrjár þotur koma þaðan á morgun, fullhlaðnar Íslendingum, þar af ein júmbóbreiðþota. Þá dugði ekkert minna en breiðþotur til að flytja Íslendinga heim í dag frá Kúbu og Portúgal. Stöð 2 greindi frá þessu í kvöld.

Ef einhver efast um að góðæri ríki á Íslandi þá mátti svo sannarlega sjá einn anga þess á Keflavíkurflugvelli dag. Klukkan rétt rúmlega tólf lenti þar leiguflugvél spænska flugfélagsins Futura. Um borð voru 189 farþegar á vegum ferðaskrifstofunnar Heimsferða að koma frá Las Palmas á Kanaríeyjum. Klukkustund og þrem korterum síðar kom önnur flugvél, einnig frá Kanaríeyjum, merkt spænska flugfélaginu Spanair. Um borð voru 212 farþegar á vegum ferðaskrifstofunnar Sumarferða. Setið var í hverju einasta sæti.

Ekki liðu nema sjö mínútur þar til þriðja þotan birtist, einnig merkt Spanair og einnig á vegum Sumarferða. Þotan hafði flogið sömu flugleið frá Kanarí til Íslands. Hvert einasta af 212 sætum Airbus-þotunnar var skipað. Og ekki þurfti við að bíða lengi eftir fjórðu þotunni, vél frá Futura, og um borð voru 187 farþegar á vegum Heimsferða. Og hún var líka að koma frá Kanaríeyjum.

Inni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar var þröng á þingi þegar allir Kanaríeyjafararnir sóttu töskurnar sínar af færibandinu. Og það var víst ekki hægt að þverfóta fyrir Íslendingum á Kanarí um þessa páska því viðmælendur fréttastofu Stöðvar 2 sem voru að koma þaðan sögðu að alls staðar hefði verið töluð íslenska hvar sem þeir hefðu komið. Menn töluðu um að hátt í tvö þúsund Íslendingar hefðu verið á Kanaríeyjum um páskana.

En það voru flugvélar að koma víðar að í dag. Farþegar komu frá Verona á Ítalíu, en flestir höfðu verið þar á skíðum. Í morgun kom breiðþota með 400 Íslendinga frá Kúbu og sama breiðþota var svo væntanleg klukkan átta í kvöld með 400 Íslendinga frá Portúgal.

Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Leifsstöðvar, segir mikið að gera í flugstöðinni enda hafi verið von á um 25 farþegavélum á sólarhringnum og 5400 farþegum. Greinilegt sé að landinn sé á ferð og flugi um þessar mundir. Höskuldur áætlar að yfir 80 prósent farþeganna sem koma til landsins í dag séu Íslendingar á leið heim úr páskafríi.

Og það er ekkert lát á ferðalögum landans því eftir að vélarnar höfðu verið affermdar við Leifsstöð í dag voru þær fljótlega fylltar aftur af Íslendingum á leið út í heim að njóta lífsins í góðærinu.

Frá Kanaríeyjum komu um 800 farþegar með þotunum fjórum í dag. Tvær þotur eru svo væntalegar þaðan í nótt með um 400 Íslendinga og annað kvöld er von á enn einni þotunni þaðan, breiðþotu með um 400 Kanarífara. Yfirmenn í Leifsstöð segja farþegafjöldann sem fer um flugstöðina um þessa páska um fimmtán prósentum meiri en í fyrra.

Sjá nánar sjónvarpsfrétt úr fréttatíma Stöðvar 2 á Vísi.is á slóðinni: http://media.gagna.net/uskefnistod2/clips/2005_03/1957/frett10.wmv

Mynd: Þota Futura lendir í Keflavík rétt rúmlega 12 á hádegi í dag. Myndina tók Hilmar Bragi fyrir Stöð 2 í dag.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024