Gríðarlega umfangsmikil flugslysaæfing í gangi við Leifsstöð
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Isavia ohf. efndu til umfangsmikillar viðbragðsæfingar samkvæmt flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll í dag laugardag, 5. maí. Ljósmyndari Víkurfrétta var á staðnum og fylgdist með þessari stóru framkvæmd.
Flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á eða við Keflavíkurflugvöll. Æfingin er almannavarnaæfing þar sem allir viðbragðsþættir vegna flugslyss eru prófaðir, þ.m.t. rannsókn og úrvinnsla. Líkt er eftir flugslysi við lendingu á Keflavíkurflugvelli og æfð samvinna viðbragðsaðila með áherslu á samhæfingu og virkni áætlunarinnar. Æfingin er umfangsmesta viðbragðæfing vegna flugsamgangna sem haldin er í landinu með reglubundnum hætti.
Í æfingunni var líkt eftir aðstæðum vegna lendingar farþegaflugvélar á leið vestur umhaf sem lýsti yfir hættuástandi vegna áastands um borð þegar flugvélin var stödd í um klukkustundar fjarlægð frá Keflavík. Um borð eru um 40-60 manns og strax var boðað „hættustig gult“ samkvæmt flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar. Allir viðbragðsaðilar á Suðurnesjunum eru kallaðir út og samhæfingarstöð almannavarna í Reykjavík er mönnuð ásamt aðgerðastjórnarstöð á Keflavíkurflugvelli. Ástand flugvélarinnar fer smátt og smátt versnandi uns hún brotnar í lendingu á flugvellinum og eldur kviknar í flakinu. Viðbragðsaðilar bregðast skjótt við og eldur er slökktur í flakinu og björgunaraðilar taka til starfa við að bjarga farþegum og áhöfn og koma slösuðum undir læknishendur. Farþegar sem eru ómeiddir og aðstandendur fá viðeigandi aðhlynningu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þá taka rannsóknaraðilar til starfa við rannsókn á orsökum slyssins.
Þátttakendur í æfingunni voru allir viðbragðsaðilar á Suðurnesjum auk viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu, flugvallarstarfsmenn, slökkvilið, lögregla, landhelgisgæsla, björgunarsveitir, sjúkrahús, Rauði krossinn, flugrekendur og flugafgreiðsluaðilar, prestar og rannsóknaraðilar ásamt samhæfingarstöð almannavarna auk sjálfboðaliða sem léku flugfarþega og aðstandendur – alls um 350 manns. Undirbúningur æfingarinnar hefur staðið um allangt skeið en svo umfangsmikil æfing var síðast haldin á Keflavíkurflugvelli vorið 2009.
VF-Myndir: [email protected]