Greitt fyrir aðgengi Grindvíkinga að þjónustu í Reykjavík
Borgarráð Reykjavíkur sendir bæjarstjórn Grindavíkur og Grindvíkingum öllum innilegar samstöðukveðjur vegna þeirra alvarlegu atburða sem hafa átt sér stað í Grindavík og óvissunnar sem nú ríkir þar. Þetta kemur fram í sameiginlegri bókun borgarráðs sem samþykkt var í dag. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.
Í bókuninni segir einnig að vegna þessarar alvarlegu stöðu sé samstaða í borgarráði um að Reykjavíkurborg greiði götu bæjarstjórnar Grindavíkur og Grindvíkinga og aðstoði eins og hægt er. „Borgarráð lýsir jafnframt yfir þakklæti sínu í garð starfsfólks almannavarna, björgunarsveita og Grindvíkinga sjálfra sem unnið hafa sleitulaust að því að tryggja öryggi íbúa. Borgarráð býður starfsfólk Grindavíkurbæjar velkomið í Ráðhús Reykjavíkur og lýsir yfir eindregnum vilja til þess að aðstoða við þau brýnu verkefni sem framundan eru.“
Vinnuaðstaða starfsfólks Grindavíkurbæjar í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Vilji til að aðstoða eftir megni
Starfsfólk á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar hefur komið sér vel fyrir á annarri hæð Ráðhúss Reykjavíkur og í dag var fáni sveitarfélagsins dreginn að húni við Ráðhúsið. Við það tækifæri bauð Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur Grindvíkinga formlega velkomna. „Fólk áttar sig oft ekki á því fyrr en á raunastundu hvað starfsemi sveitarfélaga er mikið lím í samfélaginu. Við viljum vera til staðar eftir fremsta megni og ég dáist að Fannari [Jónassyni, bæjarstjóra Grindavíkur] og samstarfsfólki hans vegna framgöngu þeirra síðustu daga. Hjá borginni ríkir alls staðar vilji til að aðstoða eftir megni svo ekki hika við að benda okkur á hvað við getum gert. Velkomin!“ sagði Dagur meðal annars. Fannar þakkaði ómetanlegan stuðning og drógu þeir Dagur fána Grindavíkur að húni í sameiningu.
Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur, Þórir Kjartansson öryggis- og húsvörður í Ráðhúsi Reykjavíkur og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur draga fána Grindavíkur að húni við Ráðhúsið.
Grindvíkingum boðið í sund, á söfn og á íþróttaæfingar
Fagsviðum borgarinnar og miðlægri stjórnsýslu verður falið að útfæra tillögur til að greiða aðgengi íbúa Grindavíkur að þjónustu Reykjavíkurborgar eins og kostur er og í samræmi við formlegar óskir almannavarna. Þá verður Grindvíkingum boðið að nýta sundlaugar borgarinnar og söfn sér að endurgjaldslausu og gildir hið sama um Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Börnum og ungmennum verður boðið á æfingar hjá íþróttafélögum án endurgjalds í samstarfi við ÍBR og UMFG og sérstaklega skoðað hvort koma megi á æfingum á vegum UMFG í samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur og Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur.
Skólamál
Eftir fund með sviðstjórum fræðslumála á vettvangi almannavarna höfuðborgarsvæðisins var í upphafi vikunnar ákveðið að vera með verkaskiptingu milli sveitarfélaganna til að virkja sem flest og dreifa verkefnum. Þannig setji sveitarfélögin fólk í teymi eins og þau hafi ráðrúm til. Mikilvægt sé að gera þetta á þeirra hraða og í samræmi við óskir Grindvíkinga.
· Reykjavíkurborg: Grunnskólamál og frístundaheimili (þar með talinn búnaður).
· Mosfellsbær: Leikskólamál.
· Hafnarfjörður: Málefni barna af erlendum uppruna og börn í viðkvæmri stöðu.
· Kópavogur: Félagsmiðstöðvar unglinga og málefni ungmenna.
· Garðabær: Íþróttir, tónlistarskólar og annað æskulýðsstarf.
Horft er til þess að Reykjanesið, Árborg og Ölfus verði með í þessari vinnu ef það hentar þeim sem og fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Skóla- og frístundasvið og velferðarsvið hafa að beiðni Almannavarna þegar unnið að ýmsum tillögum til að aðstoða og koma til móts við Grindvíkinga þegar kemur að fræðslumálum og velferðarþjónustu og er lagt til að sviðin haldi því áfram í samstarfi við Grindavíkurbæ og Almannavarnir.
Samgöngumál og íbúakort
Margir Grindvíkingar búa nú í það minnsta tímabundið á höfuðborgarsvæðinu og samþykkti borgarráð tillögu samgöngustjóra um tímabundna heimild til frávika frá reglum um íbúakort vegna neyðarástands.
Íbúar með lögheimili í Grindavík með tímabundna búsetu innan íbúakortasvæða geta sótt um íbúakort sem nánar er útfært í tillögu samgöngustjóra. Gildir heimildin frá samþykkt til 31. janúar 2024.
Beiðnir á grundvelli þessarar tímabundnu heimildar um afgreiðslu íbúakorta fara í gegnum þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111 eða á netfangið [email protected], þaðan sem þeim verður komið áfram til úrvinnslu hjá Bílastæðasjóði.
Í beiðni um afgreiðslu íbúakorta þarf að koma fram nafn og kennitala viðkomandi, lögheimili og fastanúmer þess, yfirlýsing um tímabundinn búsetustað innan íbúakortasvæðis, tímabundið heimilisfang og tímalengd búsetu ef hún liggur fyrir, bílnúmer, netfang og símanúmer.
Starfsfólk á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra, Þorsteini Gunnarssyni borgarritara og Fannari Jónassyni, bæjarstjóra Grindavíkur.