Greiddi með 100 dollara leikfangaseðli
Viðskiptavinur, sem keypti sér varning í verslun í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni greiddi fyrir hann með 100 dollara leikfangaseðli. Í fyrstu var talið að seðillinn væri falsaður, en við nánari athugun virtist svo ekki vera heldur væri um leikfangaseðil að ræða. Lögreglan hafði upp á manninum og hans bíður nú að greiða fyrir vörurnar með gjaldgengum miðli og jafnframt að borga til baka afganginn sem hann fékk í viðskiptunum.
Ökumaður, sem mældist á 174 km. hraða á Reykjanesbraut sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglunnar á Suðurnesjum heldur hélt för sinni áfram. Honum var því veitt eftirför dágóðan spöl þar til bifreið hans var stöðvuð á móts við Seltjörn. Hann þurfti að greiða á annað hundrað þúsund krónur í sekt.
Tíu ökumenn til viðbótar hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum, þar af rúmlega helmingur erlendir ferðamenn.
Þá var óvenjumikið um að ökumenn legðu bifreiðum sínum ólöglega því níu voru staðnir að því. Einnig bar á því að fólk væri ökuréttindalaust undir stýri, sinnti ekki stöðvunarskyldu eða talaði í síma án tilskilins búnaðar.