Bygg
Bygg

Fréttir

Greiða tugi þúsunda króna fyrir hraðakstur
Sunnudagur 17. júní 2007 kl. 01:09

Greiða tugi þúsunda króna fyrir hraðakstur

Fjórir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í dag. Sá er hraðast ók var á 132 km. hraða miðað við klst. á Reykjanesbraut. Nú hafa hraðasektir hækkað umtalsvert og þannig þurfa þeir sem eru teknir á 115 km. hraða, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km. á klst., að greiða 50.000 krónur í sekt og svo fara þær stighækkandi eftir því sem hraðinn eykst. Gera má ráð fyrir að þeir fjórir sem teknir voru í dag komi til með að greiða hundruð þúsunda, samtals, í sektir eftir vanhugsaðan hraðakstur dagsins.

Annars var rólegt hjá lögreglunni á Suðurnesjum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn