Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Graslagning að hefjast á Keflavíkurvelli
Föstudagur 23. apríl 2010 kl. 14:43

Graslagning að hefjast á Keflavíkurvelli


Ekki verður hægt að spila á nýja grasinu á knattspyrnuvellinum í Keflavík fyrr en um mitt sumar en veðurfarslegar aðstæður hafa ráðið því að ekki hefur verið hægt að ráðast í graslagninu fyrr en nú. Keflvíkingar munu því hefja keppnistímabilið á Njarðvíkurvelli.  Í morgun var hafist handa við lagningu grassins.

Ekki hefur verið hægt að skera grasið sem leggja á vegna þess að mikið frost og bleyta hefur verið á svæðinu þaðan sem grasið er tekið, að sögn Guðlaugs H. Sigurjónssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar.
„Afar slæmar aðstæður, auð jörð og mikið frost, varð til þess að frostið fór niður á um 40 cm dýpi. Sem verður til þess að þegar byrjar að þiðna og rigna þá liggur vatnið ofan á frostinu og kemst ekki niður. Því þiðnar það afar hægt og er mjög lengi að þorna. Við höfum verið í sambandi við þá aðila sem rækta og selja gras sem hentar á þetta en það er sama vandamálið hjá þeim öllum. Af þeim sökum hefur ekki verið hægt að fá gras frá því snemma í desember,“ sagði Guðlaugur í samtali við VF.

Guðlaugur segir næstu daga hafa mikil áhrif á vöxt rótarkerfisins  og framvindan ráðist nokkuð af því. Það gras sem náðist að leggja um miðjandesember  hafi ekki enn náð rótarfestu. 
Miklar kröfur eru gerðar um lagningu grass á keppnisvelli og segir Guðlaugur verkið því taka lengri tíma heldur en venjuleg lagning. Notaðar verða þrjár lagningavélar og má reikna með að verkið taki fimm til sex daga. Það fer svo alveg eftir aðstæðum og umhirðu hvenær hægt verður að spila á vellinum, segir Guðlaugur.

„Sé kalt í veðri, eins og er núna, getur upphitunin hjálpað til við að koma grasinu af stað. Þetta er þó afar vandmeð farið þar sem skapast getur ójafnvægi í grasinu, t.d. ef lofthiti er mínus fimm gráður á nóttinni og jarðvegshiti 6-7 gráður, sem getur verið varasamt. En vissulega getur hitinn hjálpað til við að ná upp jarðveghitanum og flýtt grasvextinum en aðstæður spila samt mikið þar inní þegar hætta á miklu næturfrosti er liðin hjá,“ segir Guðlaugur. Að hans sögn er reynt að flýta fyrir vexti rótanna með góðum áburði sem settur er undir grasið.

Búast má við að völlurinn verði afar laus og viðkvæmur fyrst um sinn eða allt þar til rótakerfið hefur náð upp góðum styrk, að sögn Guðlaugs.  Afar erfitt sé að segja hvenær völlurinn verður tilbúinn til notkunar.
„Best væri auðvitað að hann fengi sem lengstan tíma til að ná sér en gangi allt að óskum þá tel ég að við ættum að taka stöðuna í lok júní en það fer allt eftir veðri og umhirðu.Miðað við stöðuna núna ætti gras að óbreyttu að vera komið á í lok næstu viku. Því má  reikna með að frágangur taki eina til tvær vikur. Verkinu ætti þá að ljúka um miðjanmaí,“ sagði Guðlaugur.

VFmyndir/elg


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024