Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Grænir sigruðu í Starfshlaupi FS
Mánudagur 21. mars 2005 kl. 13:58

Grænir sigruðu í Starfshlaupi FS

Síðasta kennsludag fyrir páska fór hið árlega Starfshlaup fram í 11. sinn. Fyrir þá sem ekki þekkja starfshlaupið þá reyna nemendur með sér í n.k. boðhlaupi þar sem keppt er í flestum þeim námsgreinum sem kenndar eru við skólann auk ýmis konar þrauta. Að þessu sinni kepptu 9 lið í hlaupinu en í hverju liði eru nokkrir tugir keppenda auk stuðningsliðs, fánabera o.fl.

Keppnin byrjaði í Íþróttahúsinu þar sem keppt var í reiptogi, pokahlaupi og fleiri greinum. Síðan var synt og hlaupið en að því loknu þeystu keppendur inn í skólann þar sem liðin hlupu milli kennslustofa og leystu verkefni auk þess að leysa ýmsar þrautir á göngum. Keppnin endaði síðan á sal þar sem liðin lögðu á borð, dönsuðu, sungu, léku o.fl. Einn af hápunktum starfshlaupsins á hverju ári er síðan kappátið þar sem hvert lið fær einn kennara til að keppa fyrir sína hönd. Að venju myndaðist mikil stemmning á sal þegar úrslitin nálguðust og enn einu sinni reyndist nýji salurinn vel.

Að þessu sinni var það "Græna liðið" sem sigraði eftir harða keppni en frammistaða liðsins og liðsandi var svo sannarlega til fyrirmyndar. Liðsmenn sigurliðsins fengu að sjálfsögðu hina hefðbundnu pizzuveislu í sigurlaun. Að venju var þó skemmtunin í fyrirrúmi hjá nemendum og starfsfólki skólans.

Texti af vef FS, VF-myndir/Þorgils

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024