Gossvæðið opið til kl. 21 í kvöld
Aðgengi almennings að gossvæðinu á Fagradalsfjalli er opið til kl. 21 í kvöld og rýming svæðis hefst kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Spá veðurvaktar um veður og gasdreifingu í dag:
Norðan og norðvestan 5-10 m/s í dag en hæg vestlæg eða norðvestlæg átt síðdegis og í kvöld með dálítilli snjókomu eða slyddu. Nægilega hægur vindur svo uppsöfnun gass geti orðið hættuleg nærri gosstöðvum en ekki líklegt að mengunar verði vart í byggð.
Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
· Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
· Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
· Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
· Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.