Gosstöðvarnar rýmdar kl. 17:00
Vegna veðurs vill Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hvetja fólk sem leggur leið sína að eldgosinu í Geldingardölum í dag að yfirgefa eldgosasvæðið fyrir klukkan fimm í dag, þriðjudaginn 23. mars. Samkvæmt spám Veðurstofu Íslands er í dag suðvestlæg átt og mun draga smám saman úr vindi.
Eftir klukkan 19:00 má gera ráð fyrir að vindur sé undir 3 m/s og því getur magn SO2 nálægt eldstöðinni farið yfir 9000 µg/m3.
Eftir klukkan 19:00 má gera ráð fyrir að vindur sé undir 3 m/s og því getur magn SO2 nálægt eldstöðinni farið yfir 9000 µg/m3.
Því getur skapast mikil hætta fyrir fólk sem er þar á staðnum. Miðað við vindaspá næst gosstöðvunum er því líklegt að loftgæði í næsta nágrenni gosstöðvanna og að gasmengun frá CO2 í dældum og lægðum nálgist lífshættuleg gildi.
Almennt er því ráðlegt að halda sér uppi á hæðum og ekki fara niður í dali eða dældir í næsta nágrenni gosstöðvanna og halda sér innan stikuðu gönguleiðarinnar.