Gosstöðvar opna á miðvikudagsmorgun
Opnað verður aftur fyrir umferð að gosstöðvunum kl. 6:00 í fyrramálið, miðvikudaginn 7. apríl. Lokað verður fyrir alla umferð að gosstöðvunum kl. 18:00 eða fyrr ef nauðsyn krefur. Viðbragðsaðilar munu hefja rýmingu á gossvæðunum kl. 22:00.
Þeir sem hyggjast ætla að fara að gosstöðvunum eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum.