Goslokum lýst yfir við Litla-Hrút
Tíu dagar eru frá því að virkni mældist í gígnum við Litla-Hrút. Nánast engin aflögun mælist lengur á svæðinu og dregið hefur verulega úr jarðskjálftavirkni. Því má segja að enn einum kafla í eldsumbrotunum á Reykjanesskaga sé lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Mikilvægt er þó að hafa í huga að enn er hætta nærri gossvæðinu. Mikill hiti leynist í nýja hrauninu. Sums staðar er aðeins þunn skel yfir annars funheitu og óstorknuðu hrauni. Jaðrar nýja hraunsins eru óstöðugir og úr þeim geta fallið stórir hraunmolar. Gas sem sleppur úr hrauninu getur safnast í dældir. Í kjölfar umbrotanna leynast líka sprungur á svæðinu sem skapa hættu, segir jafnframt í tilkynningunni.