Gosgæsla í snjó og kulda
– Björgunarsveitin Suðurnes við lokunarpóst í Tómasarhaga.
	Hópur frá Björgsveitinni Suðurnes annaðist gosgæslu fyrir Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra um nýliðna helgi. Gæslan fór fram við Tómasarhaga en þar er lokunarpóstur á svokallaðri ytri lokun.
	
	Gæslan er liður í lokunum Almannavarna vegna eldgossins í Holuhrauni og óróans í Bárðarbungu. Verkefnið gekk vel þrátt fyrir töluverðan kulda og snjókomu.
	
	Sjö aðilar frá sveitinni sinntu þessari gæslu allan sólahringinn um helgina en farið var af stað á fimmtudaginn með einn breyttan bíl og sexhjól og kom hópurinn þreyttur heim í gærkvöldi.
	
	 


 
	
						 
	
						


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				