Göngustígur milli Garðs og Reykjanesbæjar í augsýn
Reykjanesbær hefur sótt um framkvæmdarleyfi vegna 1. áfanga hjóla- og göngustígs á milli Reykjanesbæjar og Garðs í Suðurnesja-bæ. Áfanginn sem um ræðir er á milli Reykjanesbæjar og golfvallarins í Leiru.
Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar segir að fyrirhugaður göngustígur sé í samræmi við aðalskipulag hjá Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ og er framkvæmdin í grenndarkynningu gagnvart landeigendum.
Ráðið hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að gefa út framkvæmdarleyfi þegar endanleg útfærsla liggur fyrir að lokinni grenndarkynningu.