Gönguleiðum að gosstöðvunum verður lokað klukkan 18 í dag
Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum í dag segir að opið verði inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi en gönguleiðum inn á svæðið verður lokað kl. 18 í dag.
Lokun gekk vandræðalaust fyrir sig í gær og virðast flestir sýna því skilning að aðgangur inn á gossvæðið er háður takmörkunum. Að mati lögreglustjóra er ekki forsvaranlegt að halda gönguleiðum opnum allan sólarhringinn. Af öryggisástæðum verður gönguleiðum frá Suðurstrandarvegi því lokað daglega kl. 18, eða fyrr eða seinna eftir atvikum, þegar opið er. Sú ákvörðun gildir á meðan gos stendur yfir við fjallið Litla Hrút. Vigdísarvallavegi verður lokað samhliða lokun gönguleiða.
Lokun inn á svæðið kl. 18 í gær var án vandræða. Ferðamenn sýna lokunum inn á svæðið skilning.
Gosvaktin var róleg í gærkvöldi og það sem af er degi. Það óhapp varð í nótt sem leið að björgunarsveitarmaður velti fjórhjóli á gönguleið A. Var hann fluttur af vettvangi í sjúkrabíl. Kenndi hann sér meins í baki og aflögun á hendi. Enn sem fyrr safnast fólk saman upp við gíginn og gengur erfiðlega að ná þessu fólki út af hættusvæði. Hins vegar virtist enginn vera þar eftir kl. 9 í gærkvöldi. Tveir ferðamenn urðu fyrir smá hnjaski á gönguleið A og voru fluttir niður á bílastæði. Þá þurfti að hefja leit að eldri konu á svæðinu en hún skilaði sér að lokum niður á bílastæði. Í gærkvöldi þurfti að aðstoða vanfæra konu á Meradalaleið og var hún flutt til aðhlynningar á kvennadeild Landspítalans. Enn loga gróðureldar á svæðinu.
Fjallið Litli-Hrútur er inn á hættusvæði. Inn á hættusvæði er fólk á eigin ábyrgð.
Meðfylgjandi er kort af hættusvæði við gosstöðvarnar.
Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Ganga þarf um átján kílómetra leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum. Gangan fram og til baka getur tekið fimm til sjö klukkustundir. Aðrar merktar gönguleiðir eru jafnframt opnar. Meradalaleið (leið E) var opnuð daginn eftir að gos hófst. Leiðin liggur til norðausturs frá bílastæði í Stóra Leirdal í átt að útsýnisstað á Hraunsels – Vatnsfelli.
Vakin er athygli á því að gönguleið A er mun erfiðari gönguleið en leið E.
Talinn fjöldi í gær á Meradalaleið: 1.952. Eldri gönguleiðir: 1.358.
Lögreglumenn, landverðir og sjúkraflutningamenn eru á svæðinu í dag. Björgunarsveitir sinna útköllum á svæðinu en verða þar ekki að staðaldri. Erfiðlega hefur gengið að manna vaktir björgunarsveitamanna. Fyrirkomulag eftirlits kallar á ábyrgða hegðun ferðamanna.
Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.
Mælt er með því að fólk noti rykgrímur til að forðast mengun frá gróðureldum. Fólk fer að gosstöðvunum á eigin ábyrgð. Þá er lögð áhersla á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu, eða þungaðar konur. Það er vegna hugsanlegrar gasmengunar en einnig vegna reyksins frá gróðureldum. Þá er gangan löng og reynist mörgum erfið.
Göngumenn klæði sig eftir veðri, taki með sér nesti og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.
Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.
Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi.
Sjá jafnframt upplýsingar á https://safetravel.is/ https://www.almannavarnir.is/ https://www.vedur.is/ https://www.visitreykjanes. is/en https://loftgaedi.is/ loftgaedi.is.
Akstur utan vega er bannaður.
Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila. Fjöllin Litli-Hrútur og Keilir eru inn á merktu hættusvæði.
Spá veðurvaktar um gasdreifingu:
Sunnan og síðar vestan 3-8 m/s í dag. Gasmengun frá gosinu berst til norðurs og austurs yfir suðvestanvert landið.
Spá gerð: 23.07.2023 21:37. Gildir til: 24.07.2023 23:59.