GÖNGULEIÐIR VIÐ ÞORBJÖRN
Grindavíkurbær hefur lagt mikla áherslu á ferðamál og er með mörg verkefni í farvatninu á því sviði. Búið er að setja saman vinnuhóp sem á að finna leiðir til að gera svæðið umhverfis Þorbjörn og nágrenni, að skemmtilegu heilsu- og útivistarsvæði. Í hópnum eru fulltrúar frá Grindavíkurbæ, Hitaveitu Suðurnesja, Bláa Lóninu hf., Hótel BL og Veitngahúsinu Jenný.