Bygg
Bygg

Fréttir

Gönguleiðir á Reykjanesskaga - Nýir fræðsluþættir á VF
Sunnudagur 18. september 2011 kl. 22:14

Gönguleiðir á Reykjanesskaga - Nýir fræðsluþættir á VF



Á vef Víkurfrétta munu á næstunni birtast nýir fræðsluþættir um gönguleiðir á Reykjanesskaga. Í þáttunum leiðir leiðsögumaðurinn og náttúruljósmyndarinn Ellert Grétarsson áhorfendur um helstu náttúruperlur Reykjanesskagans. Ein gönguleið er kynnt í hverjum þætti og með hverri þeirra fylgir kort sem hægt er að prenta út. Í þáttunum bregður einnig fyrir fjölda ljósmynda sem Ellert hefur tekið á skaganum á undanförnum árum.


Alls verða þættirnir fjórir en þetta verkefni er styrkt af Menningarráði Suðurnesja. Víkurfréttir, hafa tekið að sér að hýsa þættina og hafa þá aðgengilega almenningi á vf.is.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


„Hingað til hefur almenningi staðið til boða slíkt efni með leiðarlýsingum í texta og oft sáralitlu myndefni. Þegar videóið og netið eru orðnir þeir gríðarsterkri miðlar sem raun ber vitni fannst mér alveg upplagt að nýta þá og setja þetta efni fram á lifandi og myndrænan hátt. Ég prófaði að gera einn slíkan þátt í fyrrasumar og fékk afar góð viðbrögð. Það varð mér hvatning til að gera fleiri slíka þætti og sótti ég um styrk í verkefnið frá Menningarráði Suðurnesja. Ég vildi hafa þetta á samfélagslegum nótum, þ.e. að með því að fá styrk í verkefnið ætlaði ég að hafa efnið aðgengilegt fyrir almenning, honum að kostnaðarlausu. Þess vegna leitaði ég til Víkurfrétta sem tóku að sér að hýsa þættina og hafa þá aðgengilega á vf.is. Þá geta þeir sem vilja, t.d. ferðaþjónustuaðilar, sveitarfélög og aðrir sem vilja kynna þetta fallega svæði okkar, sett upp tengla á efnið á heimasíðum sínum. Tilgangurinn með þessu er að kynna svæðið okkar og ekki síst fyrir heimamönnum sjálfum en eins og flestir hafa orðið varir við hefur áhugi á gönguferðum, útivist og náttúruskoðun aukist gríðarlega á síðustu árum, sem er mjög ánægjulegt," svarar Ellert aðspurður um tilurð þáttanna.


Um er að ræða fjóra þætti eins og áður segir. Kynntar eru gönguleiðir í Krýsuvík, Trölladyngju, á Reykjanesi og á Selatöngum og í Katlahrauni. En verður framhald á þessu verkefni?
„Vonandi, þetta var mjög skemmtileg vinna sem ég væri alveg til í að þróa áfram. Það er gríðarleg vinna á bak við þetta: að safna myndefni og heimildum, skrifa handrit, kortagerð, hljóðsetja, klippa og fleira. Það var því gott að fá smá styrk í þetta þó hann hrykki ekki upp í alla þessa vinnu, ef maður ætti að reikna þetta í tímakaupi. En ef einhverjir hafa áhuga á að fjármagna framhaldið þá er ég alveg til viðræðu," sagði Ellert.


Fyrsti þátturinn verður aðgengilegur á vef Víkurfrétta á morgun, mánudag. Hér að neðan er stutt sýnishorn úr verkefninu.


Myndin: Feðgar á ferð - Ellert Grétarsson ásamt Guðsteini Fannari, syni sínum sem hefur aðstoðað föður sinn við kvikmyndatökur.