Fréttir

Gönguferð um nágrenni Bláa Lónsins
Fimmtudagur 17. apríl 2014 kl. 12:00

Gönguferð um nágrenni Bláa Lónsins

– á annan í páskum

Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða upp á menningar- og sögutengda gönguferð mánudaginn 21. apríl, annan í páskum.
 
Gangan hefst kl. 11.00 við bílastæði Bláa Lónsins og er áætlað að hún taki 2-3 klukkustundir. Möguleiki er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Leiðin sem farin verður er auðveld yfirferðar og hentar fyrir alla fjölskylduna.
 
Gengið verður um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól, farið með Skipstíg sem er  forn þjóðleið. Þá verður gengið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Orkustígurinn sem liggur frá Grindavik og að Bláa Lóninu verður genginn og endar gangan í Bláa Lóninu.
 
Guðbjörg Ásgeirsdóttir, frá Eldfjallaferðum í Grindavík, verður leiðsögumaður í göngunni og mun hún fræða þátttakendur um leiðina með áherslu á náttúru og sögu svæðisins.
 
Góður skófatnaður er æskilegur og gott að taka með sér smá nesti. Þátttakendur eru á eigin ábyrgð. Ekkert þátttökugjald er í gönguna og göngugarpar fá sérverð (50% afslátt) í Bláa Lónið að henni lokinni.
Public deli
Public deli