Golf stolið frá bílasölu í Reykjanesbæ

Ljósgráum Volkswagen Golf árgerð 2003 með skráningarnúmerið JY 409 var stolið frá bílasölunni Bílahúsinu í Reykjanesbæ um helgina. Þeir sem vita hvar bíllinn er niðurkominn hafi samband við Bílahúsið í síma 421 8808 eða lögregluna á Suðurnesjum.






