Góður hagnaður hjá Samkaupum

Heildarvörusala fyrirtækisins á árinu nam 8,3 milljörðum króna en hagnaður eftir skatta var 146 m.kr. eins og fyrr greinir og er 2,14% af veltu. Hjá Samkaupum starfa eftir sameininguna um 550 manns í rúmlega 300 stöðugildum. Kaupfélag Eyfirðinga og Kaupfélag Suðurnesja eru stærstu hluthafar Samkaupa, norðanmenn með 50%, KSK með 44,3%, einstaklingar á Suðurnesjum eiga mismuninn.
Guðjón greindi frá starfsemi fyrirtækisins á fundinum. Þar kom m.a. fram að framundan er opnun verslunar í Selahverfi í Kópavogi í næstu viku. Einnig er opnun fleiri verslana á teikniborðinu, m.a. í Mosfellsbæ. Þá er m.a. í undirbúningi bygging nýrrar verslunar í Gerðahreppi en þar hefur Samkaup rekið veslun í áratugi. Einnig er framundan opnun nýrrar verslunar á Ísafirði og endurnýjunar Nettóverslunar í Mjódd. Guðjón sagði að matvörumarkaðurinn nú væri meira að leita eftir ódýrari verslunum með minni þjónustu.