Bygg
Bygg

Fréttir

Góðir gestir á fjölskylduveislu í Grindavík
Þriðjudagur 30. september 2003 kl. 17:19

Góðir gestir á fjölskylduveislu í Grindavík

Stjórn Foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur efndi til veislu um uppeldis- og menntamál í Grunnskólanum sl. Laugardag. Markmiðið með fjölskylduveislunni var að efla samstöðu foreldra og skóla og vekja til umhugsunar mál sem snúa að uppeldis- og menntamálum.

Það kom í hlut Þorsteins G. Kristjánssonar formanns foreldrafélagsins að setja ráðstefnuna. Þá tók við hver framsagan á fætur annarri. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands ræddi um æskufólk, Bergur Ingólfsson leikari og Grindvíkingur og einnig Guðbergur Bergsson rithöfundur. Einnig var tónlistarflutningur og ýmsir aðrir gestir komu fram.

Meðan á veislunni stóð var dagskrá fyrir börnin í íþróttahúsinu, þar sem leikmenn úr meistaraflokki körfubolta og fótbolta skipulögðu dagskrá. Veislustjóri var Hjálmar Árnason, alþingismaður.

VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn