Bygg
Bygg

Fréttir

Góðir gestir á Byggðasafninu í Garði
Fimmtudagur 30. nóvember 2006 kl. 17:19

Góðir gestir á Byggðasafninu í Garði

Framkvæmdastjóri Safnaráðs, Rakel Halldórsdóttir heimsótti Byggðasafnið á Garðskaga þann 22. nóvember s.l.  Með henni var Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar.
Framkvæmdastjóri Safnaráðs hafði ekki komið á safnið eftir að viðbygging var tekin í notkun en tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér breytta starfsemi safnsins.

Forstöðumaður Byggðasafnsins á Garðskaga Ásgeir M. Hjálmarsson, Erna Sveinbjarnadóttir formaður byggðasafnsnefndar og Oddný Harðardóttir bæjarstjóri tóku á móti gestunum og gengu með þeim um safnið.

Heimsóknin var mjög ánægjuleg og voru gestirnir ánægðir með breytingarnar og með þróun starfseminnar. Að lokum var boðið upp á kaffi og meðlæti á veitingastaðnum Flösinni, segir á vef Sveitarfélagsins Garðs.
Bílakjarninn
Bílakjarninn