HSS
HSS

Fréttir

Góð þátttaka í atvinnu- og nýsköpunarhelgi
Laugardagur 1. október 2011 kl. 12:29

Góð þátttaka í atvinnu- og nýsköpunarhelgi

Þátttaka í Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem nú er haldin á Suðurnesjum er góð. Dagskráin var formlega sett í Keili á Ásbrú í gærkvöldi að viðstöddu fjölmenni. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setti helgina og ávarpaði þátttakendur. Ávarpið verður aðgengilegt hér á vf.is síðar í dag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin er fyrir alla þá sem þyrstir í að skapa og framkvæma. Þátttakendur njóta leiðsagnar og ráðlegginga frá sérfróðum aðilum og fá tækifæri til að hlusta á reynda fyrirlesara miðla þekkingu sinni varðandi framgöngu hugmynda og stofnun fyrirtækja.



Fjölmargir taka þátt í atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem nú stendur yfir í Keili á Ásbrú. Hér hlusta þátttakendur á ræðu forseta Íslands. Á efstu myndinni tekur Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á móti Ólafi Ragnari við komuna í Keili.



VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson