Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Góð jólaverslun í Reykjanesbæ - myndir
Skyrgámur vakti mikla athygli og lukku að venju. Hér er hann inni í K-sport með börnum. VF-myndir/pket.
Föstudagur 27. desember 2013 kl. 16:29

Góð jólaverslun í Reykjanesbæ - myndir

Tók vel við sér á lokasprettinum eftir rólega byrjun.

Jólaverslun var víða góð í Reykjanesbæ. Hún byrjaði þó frekar seint en skilaði sér mjög vel síðustu vikuna fyrir jól.

Hljóðið í flestum verslunareigendum sem VF ræddi við var gott, bæði hjá þeim sem reka verslanir í miðbæ Keflavíkur eða hjá verslunarkeðjunni Samkaupum.

Stemmningin var góð á Þorláksmessu við Hafnargötuna í Keflavík en jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék jólalög og jólasveinar gáfu nammipoka í boði „Jóladaga á Suðurnesjum“ og Betri bæjar. Þá var Skyrgámur á ferðinni og hann vakti mikla athygli í miðbænum á Þorláksmesu enda í miklu uppáhaldi hjá mörgum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ys og þys í Skóbúðinni.

Viðskiptavinir inni í Ormsson.

Fjör í Krummaskuði.

Þorláksmessustemmning í Kóda.

Það var líf og fjör hjá Fjólu gullsmið.

Jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og „Jóladaga á Suðurnesjum“.

Stelpur og strákar í jólastuði á Þorláksmessu.

Jólasveinarnir gáfu nammipoka og settu skemmtilegan svip á fjörið á Hafnargötunni.