Góð aðsókn að Hópinu
Fjölnota íþróttahúsið Hópið í Grindavík hefur nú um nokkurt skeið staðið eldri borgurum í Grindavík til boða að morgni til, þ.e. þeim sem vilja fá sér heilsubótargöngu í skjóli fyrir veðri og vindum. Nú þegar veðrið hefur ekki verið sem best hafa á milli 20 - 30 manns nýtt sér þetta sem telst vera mjög gott. Húsið opnar kl. 06:30 og er opið til hádegis alla virka daga. Gestabók er í húsinu og skráir fólk sig samviskusamlega við hverja komu.
Frá þessu er greint á vef Grindavíkurbæjar.